ÁSTANDSSKOÐUN | FASTEIGNASKOÐUN | RAKAMÆLINGAR/MYGLUSKOÐUN
Kostnaðaráætlanir | Kostnaðarmat | Dómsmat | Söluskoðun
OKKAR ÞJÓNUSTA
Við sérhæfum okkur í að ástandsskoða fasteignir af öllum stærðum og gerðum.
Ástandsskoðun er mjög mikilvæg í nútíma þjóðfélagi vegna þeirra fjölmörgu þátta sem geta komið upp við t.d. sölu, kaup, leigu, byggingu, breytingar eða aðra þætti húsbygginga.
Við framkvæmum ítarlega skoðun á fasteignum og gerum lýsingu á ástandi þeirra í ítarlegri skoðunarskýrslu með tilliti til eðli byggingarhluta og einnig til laga, reglugerða og opinberra gagna.
Unnið er eftir viðurkenndum aðferðum sem eru kenndar við Háskólann í Reykjavík. Réttindi frá Háskólanum í Reykjavík.
FASTEIGNA SKOÐUN
Matsmaður er fenginn til að skoða húsnæði fyrir kaupanda. Þetta er þjónusta sem farið er að nota hér á landi en er algild á Norðurlöndunum.
Ef kaupandi er efins um kaupin þarf hann aðeins að undirskrifa kauptilboðið „Með fyrirvara um skoðun“ og getur þá látið skoða fyrir sig áður en endalega er gengið frá málunum, yfirleitt er þetta gert innan 7-10 daga eftir gerð kauptilboðs.
Mjög hefur fjölgað beiðnum kaupenda um ástandsskoðun áður en tilboð eru gerð því þá er kaupandi óbundinn seljanda. Einnig hefur fjölgað beiðnum um gróft kostnaðarmat á meintum göllum og matið lagt fram við kaupin og þá samið um lækkun á þeim kostnaði.
Þegar eign er keypt af byggingaraðila og frágangur ekki eins og hann á að vera, getur kaupandi kallað til matsmann sem leggur mat á frágang eignarinnar og gerir áætlun um kostnað við úrbætur ef þarf.
Kaupendur fasteigna, seljendur fasteigna, leigjendur fasteigna, leigusalar fasteigna, húseigendur og húsfélög.
Í framhaldi af ástandsskoðun er gert kostnaðarmat og gerð áætlun. Gerð kostnaðarmats er auka kostnaður.
Tjón og skemmdir í húsum geta oft numið milljónum króna.
Ef kaupandinn á skaðabótakröfu þá er best að gera kröfu á seljanda en ef hann er eignalaus eða jafnvel orðinn gjaldþrota þá þarf fólk að leita í tryggingu byggingarstjóra sem getur í sumum tilfellum verið erfitt.
Byggingarstjórar eru skyldaðir til að vera með ábyrgðartryggingu og í sumum tilfellum geta fasteignaeigendur þá átt bótakröfu sem tryggingafélag viðkomandi byggingarstjóra þarf að greiða.
18. gr. Um galla á fasteign. Fasteign telst gölluð ef hún stenst ekki þær kröfur um gæði, búnað og annað sem leiðir af lögum þessum og kaupsamningi. Notuð fasteign telst þó ekki gölluð, nema ágallinn rýri verðmæti hennar svo nokkru varði eða seljandi hafi sýnt af sér saknæma háttsemi.
19. gr. Nánar um galla á fasteign. Fasteign telst gölluð ef hún: a. hentar ekki til þeirra afnota sem sambærilegar eignir eru venjulega notaðar til, eða b. hentar ekki til þeirra sérstöku afnota fyrir kaupanda sem seljanda var eða mátti vera kunnugt um þegar kaupsamningur var gerður. Þetta gildir þó eigi ef kaupandi byggði ekki á þekkingu eða mati seljanda á eiginleikum eignarinnar eða skorti réttmæta ástæðu til þess. Í neytendakaupum skal ástand og búnaður fasteignar eða hluta hennar vera í samræmi við þær kröfur sem gerðar eru í lögum, stjórnvaldsreglum eða fyrirmælum reistum á þeim er voru í gildi þegar fasteign eða hlutar hennar voru byggðir eða endurbyggðir. Þetta gildir þó ekki ef kaupandi byggði ekki á þekkingu eða mati seljanda á eiginleikum eignarinnar eða skorti réttmæta ástæðu til þess.
20. gr. Tímamark við mat á galla. Við mat á því hvort fasteign telst gölluð skal miða við það tímamark er hún flyst yfir í áhættu kaupanda skv. 12. gr. eða samkvæmt samningi. Um galla getur þó verið að ræða þótt hann eða afleiðingar hans komi í ljós síðar. Seljandi ber ábyrgð á galla, sem fram kemur síðar, ef orsakir gallans eru vanefndir af hans hálfu. Sama á við ef seljandi hefur með ábyrgðaryfirlýsingu eða öðrum hætti tekist á hendur ábyrgð á eiginleikum eða öðrum kostum fasteignar í tiltekinn tíma.
PANTA SKOÐUN
VERÐLISTI
HVAÐ SEGJA VIÐSKIPTA-VINIRNIR
"Ástandsskoðunin sparaði okkur um mörg hurdruð þúsund þegar við keyptum nýju íbúðina okkar."
Jón Jónsson
Verðskrá gildir fyrir höfuðborgarsvæðið
Öll verð innihalda skoðun, og skýrslugerð.
Skila skýrslu heim til kaupanda eða á PDF formi.
Skýrslan er myndskreytt, unnin á tölvu og er í einu eintaki.
- ca. 70-100m2 með bílskúr 78.500 kr. án VSK
- ca. 100-170m2 með bílskúr 89.500 kr. án VSK
- ca. 170-250m2 með bílskúr 99.500 kr. án VSK
Gengið um með kaupanda. 37.000 kr. án VSK
Skýrsla fylgir ekki með hraðskoðun.
Ódýrari skoðun, engar myndir teknar og engin tölvuvinna. Viðskiptavinur fær í hendur útfyllt eyðublað í tvíriti þar sem ástandi eignar er lýst. Skoðunarmaður heldur eftir einu eintaki. Skýrslan afhent á staðnum gegn greiðslu.
Reikningur kemur í heimabanka frá Byggingastjóranum ehf kt 6102071380
Verð fyrir útkall 37.000 kr. án VSK
Akstur
Akstursgjald 2.500 kr. bætist við skoðunargjald.
Gerum tilboð í stærri verk
öll verð og tilboð eru án VSK
HEIM
SAMBAND
VERÐSKRÁ
PANTA
ÞJÓNUSTA
Sími: | 820 4410 Reynir | Grensásvegi 50, 3 hæð | 108 Reykjavík
FASTEIGNASKOÐUN
Grensásvegi 50, 3. hæð, 108 Reykjavík
reynir@fasteignaskodun.is
www.fasteignaskodun.is